2022 Alfreð Finnbogason bendir á gildistíma nýja samningsins.
2022 Alfreð Finnbogason bendir á gildistíma nýja samningsins. — Ljósmynd/Augsburg
„Við erum virkilega hamingjusamir yfir því að Alfreð Finnbogason hafi ákveðið að lengja dvöl sína hérna,“ sagði Martin Schmidt, þjálfari Augsburg, í gær eftir að tilkynnt var að Alfreð hefði skrifað undir nýjan samning við þýska félagið sem...

„Við erum virkilega hamingjusamir yfir því að Alfreð Finnbogason hafi ákveðið að lengja dvöl sína hérna,“ sagði Martin Schmidt, þjálfari Augsburg, í gær eftir að tilkynnt var að Alfreð hefði skrifað undir nýjan samning við þýska félagið sem gildir til ársins 2022.

Alfreð hefur verið hjá Augsburg frá ársbyrjun 2016 og skorað 32 mörk í 67 deildarleikjum. Hann hefur verið meiddur síðustu mánuði en er óðum að komast í form. Augsburg mætir Dortmund á morgun í 1. umferð þýsku deildarinnar.