Krosssaumur nefnist gjörningainnsetning eftir Pétur Eggertsson, í samstarfi við Lilju Maríu Ásmundsdóttur, sem sýnd verður í Mengi í kvöld.
Krosssaumur nefnist gjörningainnsetning eftir Pétur Eggertsson, í samstarfi við Lilju Maríu Ásmundsdóttur, sem sýnd verður í Mengi í kvöld. Í Krosssaumi er sniðmengi tónlistar og saumaskapar skoðað til hlítar og verður boðið upp á langtíma tónlistargjörning sem lýkur með útsaumuðum tónskúlptúr sem gestir geta virt fyrir sér að lokum, eins og því er lýst í tilkynningu. Verður saumavél nýtt til verksins. Pétur og Lilja eru bæði tónskáld.