Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Það fer ekki saman að ætla að veita þjónustu af öryggi og miklum gæðum á sama tíma og mikill niðurskurður er. Þarna er hárfín lína á milli og við munum fylgjast með því,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Fyrirhugaðar eru breytingar vegna rekstrarhalla Landspítalans en þær voru kynntar fyrir fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins á fimmtudag. Í breytingunum felst meðal annars að framkvæmdastjórum á Landspítalanum verður fækkað um nær helming og sviðsskrifstofum úr níu í tvær til þrjár í þeim tilgangi að ná samlegð.
Hvorugt félag fékk kynningu
Hvorki Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga né Læknafélag Íslands hefur fengið formlega kynningu á breytingunum sem Guðbjörg segir ekkert annað en niðurskurð.Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að eðlilegt hefði verið að Læknafélagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og fleiri fagfélögum hefði verið boðið að sitja kynningarfundinn sem haldinn var á fimmtudag.
„Breytingar á skipuriti geta haft mikil áhrif á öryggi og starfshætti á spítalanum og eðlilegt að það sé gert í nánu samstarfi, eða að félögunum sé haldið upplýstum á öllum stigum,“ segir Reynir.
Guðbjörg segir augljóst að spítalinn þurfi meira fjármagn. „Þetta er viðkvæm þjónusta og það þarf að vanda mjög til verka við breytingar. En breytingar geta líka verið af hinu góða og við skulum leyfa þeim að vinna betur úr þessum drögum. En eftir stendur að Landspítali er algjörlega undirfjármagnaður.“
Heilbrigðisráðherra þótti ekki tímabært að tjá sig um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar þegar mbl.is leitaði hennar viðbragða.