Þór/KA mun skipta um þjálfara að keppnistímabilinu loknu í Pepsí Max-deild kvenna í knattspyrnu.
Þór/KA mun skipta um þjálfara að keppnistímabilinu loknu í Pepsí Max-deild kvenna í knattspyrnu. Þór/KA greindi frá því í gærkvöldi að Halldór Jón Sigurðsson muni ekki sækjast eftir endurráðningu en stýrir liðinu út tímabilið eins og samningur hans kveður á um.
Halldór, sem er gjarnan kallaður Donni í knattspyrnuhreyfingunni, er á sínu þriðja keppnistímabili með liðið en undir hans stjórn varð Þór/KA Íslandsmeistari árið 2017. Halldór mun að líkindum flytjast búferlum til Svíþjóðar.