Margrét Jónsdóttir
Margrét Jónsdóttir
Margrét Jónsdóttir listmálari opnar sýninguna Forkostulegt og fagurt á morgun kl. 15 í Grafíksalnum í Hafnarhúsi, hafnarmegin. Hún sýnir verk unnin á undanförnum árum ásamt nýjum.
Margrét Jónsdóttir listmálari opnar sýninguna Forkostulegt og fagurt á morgun kl. 15 í Grafíksalnum í Hafnarhúsi, hafnarmegin. Hún sýnir verk unnin á undanförnum árum ásamt nýjum. Margrét hefur haldið á fimmta tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Verk eftir Margréti eru í eign helstu listasafna landsins og hefur hún hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna.