Tíska er svo lifandi og persónuleg. Það eru auðvitað ákveðnar stefnur: eins og allir sem horfðu á The Devil Wears Prada lærðu er ekki til neitt sem heitir „bara blá peysa“. Allur fatnaður er hannaður út frá straumum sem eru í gangi í samfélaginu. En hverju þú ákveður að klæðast og hvernig þú setur það saman getur verið frábær leið til að tjá persónuleika þinn.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fatakaupum?
Kauptu það sem þú fílar og passaðu að skoða úr hvernig efni flíkin er. Efnið segir til um hvernig flíkin kemur til með að haga sér. Góð efni endast oft á tíðum betur og þér líður yfirleitt betur í flíkinni ef hún er unnin úr vönduðum efnum. Ódýr föt geta í raun verið dýrari ef endingin er stutt og því getur verið betra að fjárfesta í gæðum. Flík sem þú sérð fyrir þér að þú getir klæðst við ólík tilefni er líka gott að eiga í fataskápnum.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Að þetta sé flík sem ég get hugsað mér að eiga lengi.
Hvernig myndirðu lýsa þínum fatastíl?
Kjólar, sólgleraugu, húfur og strigaskór eru lýsandi fyrir minn stíl. Ég keypti mér þó gallabuxur síðasta sumar en þá var ég ekki búin að eiga buxur í mörg ár. Ég er alltaf í kjól! 90% af fataskápnum mínum eru svört. Ég hef í gegnum tíðina fengið mörg komment á það að klæðast svörtu og var skömmuð á Valsleik um daginn og spurð hvort ég væri að fara í jarðarför. Ég er samt farin að kaupa ögn meiri liti en þá aðallega hlébarðamunstur og antíkbleikt. Ég elska samt liti í öllu öðru samhengi en að klæðast þeim. En hver veit, stíllinn getur breyst eins og tískan.
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd?
Ég á í rauninni ekki neina eina tískufyrirmynd en hef gaman af að skoða hverju aðrir klæðast og öll verðum við fyrir innblæstri hvert frá öðru.
En uppáhaldshönnuð?
Já nokkra. Sumir þeirra gefa mér tískuinnblástur, aðrir innblástur í hönnuninni minni og öðrum finnst mér bara gaman að fylgjast með. Iris Apfel, Henrik Vibskov, Meadham Kirchhoff, Andrea Magnúsdóttir, Coco Chanel, Alexander McQueen og Ganni eru meðal þeirra sem ég fylgist með.
Hver er þín uppáhaldsárstíð varðandi tísku og hvers vegna?
Haustið er líka nýtt upphaf, alveg eins og þegar maður byrjaði á ný í skólanum eftir gott sumar í nýjum fötum. Ég allavega elska að bæta einhverju nýju fallegu í skápinn með haustinu.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna?
Áttu þér uppáhaldsflík?
Ég á alveg nokkrar uppáhaldsflíkur. Gamall svartur Andreu-kjóll sem virkar við öll tilefni og mér finnst ég alltaf fín í en hann er hægt að dressa upp og niður eftir tilefni. Geysislopapeysan mín er síðan möst í útilegurnar, loðhárband sem strákarnir mínir gáfu mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum, dragsítt svart poncho sem ég fann í rauðakrossbúð fyrir mörgum árum og Marc Jacobs-sólgleraugun mín. Sólgleraugu eru ekki beint flík en ég elska fylgihluti.
Hvað er á óskalistanum þessa stundina?