Kvikmyndir Gwyneth Paltrow virðist ekki horfa á kvikmyndirnar sem hún leikur í. Að minnsta kosti hefur hún ekki hugmynd um hvaða leikarar leika með henni í þeim fjölda ofurhetjumynda Marvel sem hún hefur birst í.
Kvikmyndir
Gwyneth Paltrow virðist ekki horfa á kvikmyndirnar sem hún leikur í. Að minnsta kosti hefur hún ekki hugmynd um hvaða leikarar leika með henni í þeim fjölda ofurhetjumynda Marvel sem hún hefur birst í. Fyrr í sumar komust kvikmyndaunnendur að því að hún vissi ekki að hún hefði leikið í Spider-Man myndinni Homecoming sem kom út árið 2017. Nú uppljóstraði leikstjóri nýjustu Avengers-myndarinnar að Paltrow hefði spurt meðleikara sína af hverju Samuel L. Jackson væri á svæðinu þegar tekið var upp lokaatriði myndarinnar þar sem allar helstu sögupersónur Marvel-kvikmyndaheimsins voru samankomnar. Hægt er að fyrirgefa henni Spider-Man ruglinginn en Jackson hefur leikið í myndunum um Marvel-kvikmyndaheiminn frá upphafi hans, eins og Paltrow, frá því Iron Man kom út árið 2008.