Þorgrímur Andri Einarsson
Þorgrímur Andri Einarsson
Myndlistarmaðurinn Þorgrímur Andri Einarsson opnar sýninguna Uppbrot í Galleríi Fold í dag.
Myndlistarmaðurinn Þorgrímur Andri Einarsson opnar sýninguna Uppbrot í Galleríi Fold í dag. „Sýningin fjallar að hluta til um togstreituna milli listamanns og málverks og nálgast Þorgrímur viðfangsefni sín af ástríðu en þó án þess að tapa áherslunni á raunsæi í teikningu, tóna- og litasamsetningu í bland við uppbrot og abstraksjón,“ segir m.a. í tilkynningu um sýninguna. Henni lýkur 31. ágúst.