40 ára Óli Veigar er Reykvíkingur, fæddur þar og uppalinn fyrir utan tvö fyrstu árin sem voru í Hafnarfirði. Hann er með BS í sálfræði frá HÍ og er sviðsstjóri gagna og greininga hjá Gallup. Hann situr í framkvæmdastjórn Já. Maki : Hilda Hrund Cortez,...
40 ára
Óli Veigar er Reykvíkingur, fæddur þar og uppalinn fyrir utan tvö fyrstu árin sem voru í Hafnarfirði. Hann er með BS í sálfræði frá HÍ og er sviðsstjóri gagna og greininga hjá Gallup. Hann situr í framkvæmdastjórn Já.
Maki : Hilda Hrund Cortez, f. 1978, hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu.
Börn : Álfrún Cortez Ólafsdóttir, f. 2000, Emma Cortez Ólafsdóttir, f. 2008, og Tómas Cortez Ólafsson, f. 2015.
Foreldrar : Hrafn Þórðarson, f. 1953, félagsliði, bús. á Álftanesi, og Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 1952, ljósmóðir, bús. í Reykjavík.