Leikhúsið Gæti beðið skaða.
Leikhúsið Gæti beðið skaða. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðleikhúsinu var ekki gert viðvart um að framkvæmdir á Hverfisgötu, sem valda lokun hennar og miklu raski, myndu dragast á langinn. Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri segir að síðast hafi honum verið tjáð að framkvæmdunum lyki um Menningarnótt.

Nýtt leikár hefst 19. ágúst og fyrsta frumsýning nýja leikársins á stóra sviðinu, Brúðkaup Fígarós, verður sjöunda september.

Ari segir grafalvarlegt að loka Þjóðleikhúsið af með framkvæmdum í upphafi nýs leikárs. Margir leggja leið sína í leikhúsið til að kaupa kort, einkum eldra fólk sem kaupir ekki á netinu.

Þjóðleikhúsinu er skylt að tryggja aðgengi sjúkra- og slökkvibíla en framkvæmdirnar gera leikhúsinu það mjög erfitt. 2