Útlit er fyrir að handboltamarkvörðurinn Stephen Nielsen gangi til liðs við Stjörnuna frá ÍR fyrir komandi leiktíð, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Stephen hefur þó æft með ÍR í sumar en hann lék með ÍR á síðustu leiktíð.

Stephen hefur einnig leikið með ÍBV, Val og Fram hér á landi og var um tíma að láni hjá AIX í Frakklandi frá ÍBV. Hann er íslenskur ríkisborgari og lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland 2016.

Sveinbjörn Pétursson hefur varið mark Stjörnunnar síðustu þrjú ár en neyddist til að hætta í sumar vegna bakmeiðsla.