Geigen Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson skipa fiðluteknótdúettinn.
Geigen Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson skipa fiðluteknótdúettinn.
Teknófiðludúóið Geigen & plötusnúðatvíeykið Dj Dominatricks sameina krafta sína í rave-gjörningateitinni Geigen Galaxy #4 í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21.

Teknófiðludúóið Geigen & plötusnúðatvíeykið Dj Dominatricks sameina krafta sína

í rave-gjörningateitinni Geigen Galaxy #4 í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21. Geigen mun hefja ferðalagið með „magnþrungnum hljóðum fiðlunnar sem breytast í rafbylgjur og stjörnuryk með þeim afleiðingum að rýmið verður að svartholi“, eins og því er lýst í tilkynningu. Þá taka Dj Dominatricks við og flytja gesti á milli sólkerfa með dynjandi takti og hreyfimyndum. Geigen skipa Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson og Dj Dominatriks eru Arna Beth og Melkorka Þorkelsdóttir.