Fyrsta kynningarstiklan úr rómantísku gamanmyndinni Last Christmas hefur nú litið dagsins ljós. Söguþráður myndarinnar vefst um lög tónlistarsnillingsins George Michaels.
Fyrsta kynningarstiklan úr rómantísku gamanmyndinni Last Christmas hefur nú litið dagsins ljós. Söguþráður myndarinnar vefst um lög tónlistarsnillingsins George Michaels. Emilia Clarke og Henry Godling fara með aðalhlutverk en leikkonan Emma Thompson, sem einnig leikur í myndinni, er annar handritshöfunda. Last Christmas verður án efa jólamyndin í ár en væntanlegur útgáfudagur er 8. nóvember næstkomandi. Í stiklunni má heyra lög með WHAM og einnig Freedom 90 með George Michael. Horfðu á stikluna á k100.is.