Leikarinn Josh Kloss sakaði í vikunni Katy Perry um að hafa áreitt sig kynferðislega þegar þau unnu saman að tónlistarmyndbandi við lagið „Teenage Dream“ árið 2010.
Leikarinn Josh Kloss sakaði í vikunni Katy Perry um að hafa áreitt sig kynferðislega þegar þau unnu saman að tónlistarmyndbandi við lagið „Teenage Dream“ árið 2010. Í færslu á Instagram lýsti hann því þegar þau voru bæði stödd í afmælisveislu og hún gyrti buxurnar niður um hann og sýndi vinum og veislugestum tippi hans. Nú hefur sjónvarpskonan Tina Kandelaki frá Georgíu stigið fram og sakað Perry um að hafa áreitt sig, einnig í veislu. Kandelaki segir að Perry hafi verið blindfull þegar hún káfaði á henni og reyndi að kyssa hana. Hún hafi þurft að lemja hana af sér.