McGregor mun munda sverðið á ný.
McGregor mun munda sverðið á ný. — AFP
STJÖRNUSTRÍÐ Eftir dræma aðsókn kvikmyndarinnar Solo: A Star Wars Story, sem kom út í fyrra, í kvikmyndahúsum hefur Disney neyðst til að breyta um stefnu og falla frá svokölluðum „spinoff“ myndum úr Stjörnustríðsheiminum og gefa þess í stað...
STJÖRNUSTRÍÐ Eftir dræma aðsókn kvikmyndarinnar Solo: A Star Wars Story, sem kom út í fyrra, í kvikmyndahúsum hefur Disney neyðst til að breyta um stefnu og falla frá svokölluðum „spinoff“ myndum úr Stjörnustríðsheiminum og gefa þess í stað út þáttaraðir á streymisveitu sinni Disney+. Ein slíkra er ný þáttaröð sem fjallar um hinn geðþekka Jedi-meistara, Obi-Wan Kenobi. Segja gárungar vestanhafs að Ewan McGregor sem lék Kenobi í Stjörnustríðsþríleiknum sem kom út um síðustu aldamót muni mæta aftur með bláa geislasverðið.