Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Hún hefði átt að nýta tækifærið, taka á móti honum og ræða brýn málefni á borð við loftslagsmál og öryggis- og varnarmál. En hún forgangsraðar auðvitað verkefnum sínum,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar, við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur lýst því yfir að hún muni fremur sækja norrænt verkalýðsþing en taka á móti Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, sem væntanlegur er hingað til lands 4. september. Morgunblaðið setti sig í samband við þingflokksformenn á Alþingi og leitaði viðbragða við þessari ákvörðun forsætisráðherra.
Fulltrúar Samfylkingar og Miðflokks tóku í svipaðan streng og Hanna Katrín. Þingflokksformaður Miðflokksins segir ákvörðun Katrínar „í besta falli stórundarlega.“ Fulltrúar stjórnarflokka auk Pírata og Flokks fólksins voru á annarri skoðun. Einn þeirra sagðist ekki heldur myndu vilja hitta Pence.
Þá segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fjarveruna „óvenjulega“.
Athygli erlendis
» Ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla, m.a. Russia Today, Washington Post og AP.
» Haft er eftir Þór Whitehead í frétt AP að ákvörðunin eigi sér ekki hliðstæðu. Í Russia Today er því velt upp hvort Katrín sé að sýna samnorrænum ráðherrum stuðning.