Minnist ég þess er ég kynnti í ríkisstjórn drög að þingsályktun um að slíta viðræðum við Evrópusambandið. Skelfing greip um sig hjá sjálfstæðismönnum þar sem þeir töldu sig ekki geta klárað málið þrátt fyrir að þingforseti væri þeirra og stjórnin með góðan þingmeirihluta. Önnur leið var farin, en nokkrir gamlir sjálfstæðismenn geta ekki fyrirgefið sínum mönnum það.
Hinn útitekni þingflokkur sjálfstæðismanna kannast ekki við eigin ábyrgð nú sem fyrr og hefur ekki getað sagt kjósendum hvað er svona gott við orkupakkann, þrátt fyrir hringferð á ísbílnum. Frá kosningum 2013 hefur Sjálfstæðisflokkurinn stýrt utanríkismálanefnd. Flokkurinn var einnig með formennsku í atvinnuveganefnd 2013 til janúar 2017 og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Flokkurinn hefur stýrt iðnaðarráðuneytinu frá 2013. Núverandi utanríkisráðherra flokksins sat í utanríkismálanefnd 2013-2014 og var formaður Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES í mörg ár áður en hann varð ráðherra.
Hinn 18. mars 2015 sendir formaður utanríkismálanefndar Birgir Ármannson utanríkisráðherra (mér) bréf þar sem segir: „Utanríkismálanefnd hefur, í samræmi við 2. gr. reglan um þinglega meðferða EES-mála, fjallað um svokallaðan þriðja orkupakka (tilskipun 2009/72/EB o.fol.) til mats á því hvort efnislegra aðlagana sé þörf. Málið er til umfjöllunar í vinnuhópi EFTA og var utanríkismálanefnd upplýst um málið með skeyti frá utanríkisráðuneyti dags. 5. mars 2014 ásamt fylgigöngum.
Tilskipunin hefur fengið efnislega umfjöllun í atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Utanríkismálanefnd ákvað í kjölfar álits nefndanna að taka málið til frekari skoðunar, þá sérstaklega útfærslu aðlagana og stjórnskipuleg álitaefni sem uppi eru í þeim efnum og hefur fengið sérfræðinga ráðuneyta á fundi vegna málsins.
Utanríkismálanefnd óskar eftir því að unnin verði greinargerð um það hvort þau drög að aðlögunartexta sem nú liggja fyrir og þær útfærslu sem þar er kveðið á um á grundvelli tveggja stoða kerfis EES-samningsins samrýmist stjórnarskrá.“
Hinn 26. júní 2016 svarar utanríkisráðuneytið erindi Birgis en þá er utanríkisráðherra orðin Lilja Dögg Alfreðsdóttir. 20 september 2016 sendir þáverandi formaður utanríkismálanefndar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilju Dögg Alfreðsdóttur utanríkisráðherra bréf þar sem hún segir að utanríkismálanefnd hafi lokið umfjöllun um málið. Guðlaugur Þór keyrir síðan málið áfram.
Sjálfstæðismenn hafa þannig stýrt orkupakka 3 í gegnum þingið frá 2013 og til dagsins í dag.
ESB mun krefjast enn meiri stjórnar á orkumarkaði Evrópu og þar með Íslandi með orkupakka 4.
Vonandi gyrða sjálfstæðismenn sig í brók og koma með okkur í Miðflokknum að berjast gegn þessum yfirgangi ESB. gunnarbragi@althingi.is
Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins.