Ragnar Aðalsteinsson
Ragnar Aðalsteinsson
Guðrún Erlingsdóttir Arnar Þór Ingólfsson „Ég hvet þá sem enn eru á lífi og vita hvað gerðist í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu til að stíga fram og útskýra hvað gerðist.

Guðrún Erlingsdóttir

Arnar Þór Ingólfsson

„Ég hvet þá sem enn eru á lífi og vita hvað gerðist í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu til að stíga fram og útskýra hvað gerðist. Fyrr lýkur þessum málum ekki,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, eins þeirra sakborninga í málinu sem sýknaðir voru í Hæstarétti í fyrra. Ragnar segir að krafa Guðjóns sé byggð á fordæmi í skyldu máli frá 1983 þegar svokallaðir Klúbbsmenn fóru í skaðabótamál en þeir sátu í gæsluvarðhaldi í samtals 105 daga. Ragnar segir að hann hafi framreiknað með verðlagsvísitölu sambærilegar bætur og greiddar voru í því máli fyrir hvern dag, í máli Guðjóns.

Ragnar vinnur nú að undirbúningi á stefnu Erlu Bolladóttur, gagnvart íslenska ríkinu til ógildingar á synjun enduruppökunefndar á því að taka mál hennar upp að nýju.

,,Fyrst þarf að ógilda það áður en Erla getur krafist skaðabóta vegna 230 daga gæsluvarðhalds árið 1976. Gæsluvarðhalds sem hún hefur aldrei fengið að vita af hverju var,“ segir Ragnar sem telur að Erla muni að öllum líkindum gera bótakröfu vegna gæsluvarðhaldsins. Verði sú krafa gerð verði hún reiknuð út á sambærilegan hátt og í máli Guðjóns.

Sáttanefnd forsætisráðuneytisins í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur afhent ríkisstjórninni skilagrein og lauk formlega störfum 1. júlí síðastliðinn, í kjölfar þess að bótakrafa var lögð fram fyrir hönd Guðjóns Skarphéðinssonar. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Kristjáns Viðars Viðarssonar, staðfesti við mbl.is að hann hefði lagt fram bótakröfu fyrir hönd skjólstæðings síns.

Arnar segist ósáttur með ákvörðunina að leysa upp sáttanefndina, sem stofnuð var síðasta haust og að ríkið hafi litið á það að með bótakröfu Guðjóns Skarphéðinssonar hafi grundvöllur fyrir sameiginlegri lausn verið brostinn. Arnar segir nærtækt að ætla að bótakrafa Kristjáns Viðars sé sú hæsta sem nokkru sinni hafi verið lögð fram hérlendis vegna óréttar í sakamáli.