Markvörðurinn Stephen Nielsen hefur náð samkomulagi við Stjörnuna um að ganga til liðs við félagið fyrir komandi leiktíð í handboltanum.
Markvörðurinn Stephen Nielsen hefur náð samkomulagi við Stjörnuna um að ganga til liðs við félagið fyrir komandi leiktíð í handboltanum.
Stephen er byrjaður að æfa með Stjörnunni samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en honum er ætlað að fylla skarð Sveinbjörns Péturssonar, sem neyddist til að hætta í sumar vegna meiðsla.
Stephen lék síðast með ÍR, en hann hefur einnig leikið með ÍBV, Val og Fram hér á landi. Hann spilaði fyrsta landsleik sinn fyrir Ísland árið 2016.