Íslensk-breski listhópurinn Huldufugl mun flytja leikverið Kassann á kvikmyndahátíðinni Raindance Film Festival sem haldin verður 18.-29. sept. í London.
Íslensk-breski listhópurinn Huldufugl mun flytja leikverið
Kassann
á kvikmyndahátíðinni Raindance Film Festival sem haldin verður 18.-29. sept. í London. Á dagskrá hátíðarinnar eru því ekki aðeins kvikmyndir heldur einnig tónlistarmyndbönd, stuttmyndir, vefsyrpur og verk í sýndarveruleika en Kassinn er leikverk sem fer fram í sýndarveruleika fyrir einn áhorfanda í einu og fer leikari með hlutverk innan þess veruleika í rauntíma.