Fyrsta umferð á nýrri leiktíð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik hófst í gærkvöldi þar sem fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni. Geir Sveinsson, sem ráðinn var þjálfari nýliða Nordhorn í byrjun vikunnar, byrjaði á heimaleik gegn Bergischer.

Fyrsta umferð á nýrri leiktíð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik hófst í gærkvöldi þar sem fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni.

Geir Sveinsson, sem ráðinn var þjálfari nýliða Nordhorn í byrjun vikunnar, byrjaði á heimaleik gegn Bergischer. Lærisveinar Geirs héldu í við andstæðinginn í fyrri hálfleik og voru undir með einu marki, 13:12, en bilið jókst í þeim síðari þar sem Bergischer fór að lokum með fimm marka sigur af hólmi, 26:21.

Arnór Þór Gunnarsson var meðal markahæstu leikmanna deildarinnar í fyrra og hann heldur áfram í ár þar sem frá var horfið. Hann skoraði sex mörk fyrir Bergischer í leiknum og var markahæstur. Ragnar Jóhannsson, sem kom til liðsins frá Hüttenberg, var sömuleiðis í eldlínunni með Bergischer en skoraði ekki í fyrsta leik sínum.

Frábær frumraun Bjarka

Ragnar var ekki eini Íslendingurinn sem þreytti frumraun með nýju liði því Bjarki Már Elísson gerði það sömuleiðis með Lemgo þegar liðið heimsótti Wetzlar. Bjarki Már kom frá Füchse Berlín í sumar og hann byrjar vel á nýjum stað, en hann skoraði sjö mörk fyrir Lemgo, sem vann fjögurra marka sigur, 32:28 þrátt fyrir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 17:15.

Bjarki var næstmarkahæstur á vellinum og hefði verið sá markahæsti ef ekki væri fyrir stórleik liðsfélaga hans, hollenska landsliðsmanninn Bobby Schagen, sem skoraði 12 mörk í sömuleiðis fyrsta leik sínum fyrir Lemgo.

Langþráður leikur hjá Oddi

Oddur Gretarsson spilaði fyrsta leik sinn í efstu deild Þýskalands í fimm ár þegar lið hans Balingen heimsótti Magdeburg og mátti þola stórtap 38:26. Oddur skoraði fjögur mörk fyrir Balingen og var markahæstur ásamt tveimur öðrum, en liðið fagnaði sigri í 2. deildinni síðastliðið vor.

Oddur lék eitt tímabil með Emsdetten í 1. deildinni veturinn 2013-2014, en þegar hann samdi við Balingen á sínum tíma var liðið í efstu deild. Það féll hins vegar vorið áður en Oddur kom til liðsins og var hann í tvö ár með Balingen í 2. deildinni þar til sætið á meðal þeirra bestu var loks í höfn í vor. yrkill@mbl.is