Lionel Messi
Lionel Messi
Lionel Messi, fyrirliði spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, sneri aftur til æfinga í gær samkvæmt spænskum fjölmiðlum. Messi var ekki í leikmannahópi liðsins sem tapaði 1:0-fyrir Athletic Bilbao í fyrsta leik spænsku 1.

Lionel Messi, fyrirliði spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, sneri aftur til æfinga í gær samkvæmt spænskum fjölmiðlum. Messi var ekki í leikmannahópi liðsins sem tapaði 1:0-fyrir Athletic Bilbao í fyrsta leik spænsku 1. deildarinnar um síðustu helgi, en hann hefur verið að jafna sig eftir meiðsli.

Meiðsli herja á Börsunga þessa dagana, en í gær var tilkynnt að Luis Suárez yrði frá næsta mánuðinn. Þá verður Ousmane Dembélé einnig frá næstu fimm vikurnar.