[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það heitasta sem er að gerast í íþróttafataheiminum akkúrat núna er samstarf Victoriu Beckham og Reebok. Um er að ræða íþróttalínu sem er ætluð fyrir öll kyn. Í línunni eru klæðilegar íþróttabuxur sem smellpassa í lyftingar og jafnvel líka í jóga.

Það heitasta sem er að gerast í íþróttafataheiminum akkúrat núna er samstarf Victoriu Beckham og Reebok. Um er að ræða íþróttalínu sem er ætluð fyrir öll kyn. Í línunni eru klæðilegar íþróttabuxur sem smellpassa í lyftingar og jafnvel líka í jóga. Svo eru góðir íþróttatoppar í línunni sem bæði má nota við líkamsrækt en líka bara á djammið ef fólk er með hátt orkustig. Í línunni eru líka íþróttakór, bakpokar, vindjakkar og hlýrabolir svo eitthvað sé nefnt.

Fötin í línunni eru í svörtu og gráu en líka í hlýjum og eftirsóknarverðum litum eins og kóralbleikum og appelsínugulum. Hægt er að kaupa línuna á netinu í gegnum síður eins og www.mytheresa.com.