Elvar Örn Jónsson fór mikinn í fyrsta mótsleik sínum með danska handknattleiksliðinu Skjern þegar liðið vann öruggan sigur, 37:26, á Lemvig í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöld.
Elvar Örn Jónsson fór mikinn í fyrsta mótsleik sínum með danska handknattleiksliðinu Skjern þegar liðið vann öruggan sigur, 37:26, á Lemvig í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöld.
Elvar Örn skoraði níu mörk í leiknum, sem jafnframt var fyrsti mótsleikur Skjern undir stjórn Patreks Jóhannessonar, en þeir komu saman frá Selfossi í sumar eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar.
Þá var Björgvin Páll Gústavsson frábær í marki Skjern með 20 varin skot, þar af þrjú vítaköst.