Hefur þú brennandi áhuga á einhverju sem þig langar að deila með öðrum í góðum félagsskap? Langar þig til dæmis að segja frá tónlistarmanni/konu, kvikmyndaleikara sem þú veist allt um eða kenna fólki að búa til flugdreka, svo eitthvað sé nefnt?
Hefur þú brennandi áhuga á einhverju sem þig langar að deila með öðrum í góðum félagsskap? Langar þig til dæmis að segja frá tónlistarmanni/konu, kvikmyndaleikara sem þú veist allt um eða kenna fólki að búa til flugdreka, svo eitthvað sé nefnt? Nú geta allir, sem búa yfir skemmtilegum hæfileikum eða þekkingu, haldið svokölluð ÖR-námskeið með einföldum og þægilegum hætti með milligöngu fyrirtækisins Í góðum félagsskap. Vigdís Jóhannesdóttir er í forsvari fyrir fyrirtækið og ræddi um skemmtileg ÖR-námskeið við Ísland vaknar. Nánar á k100.is.