Atvinnuleysi í júlí var 3,1%, samkvæmt árstíðaleiðréttingu Hagstofu Íslands. Litlar breytingar voru á milli mánaða og var árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 81,2%, sem er rétt um 0,2 prósentustigum lægra en í júní. Af vinnuaflinu reyndust 208.

Atvinnuleysi í júlí var 3,1%, samkvæmt árstíðaleiðréttingu Hagstofu Íslands. Litlar breytingar voru á milli mánaða og var árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 81,2%, sem er rétt um 0,2 prósentustigum lægra en í júní.

Af vinnuaflinu reyndust 208.400 vera starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,5%.

Samanburður mælinga fyrir júlí 2018 og 2019 sýnir að í vinnuafli fjölgaði um 3.000 manns, en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,7 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 2.700 og hlutfallið var einnig 0,7 prósentustigum lægra en það var á sama tíma árið 2018.

Atvinnulausir í júlí 2019 voru um 200 manns fleiri en á sama tíma árið 2018, þegar þeir voru 5.200.