Ómar Benediktsson
Ómar Benediktsson
Félagið NT ehf. keypti í gær hluti fyrir 76 milljónir króna í Icelandair Group. Gengu viðskiptin í gegn á genginu 7,15. NT er að fullu leyti í eigu Ómars Benediktssonar, varaformanns stjórnar Icelandair Group.

Félagið NT ehf. keypti í gær hluti fyrir 76 milljónir króna í Icelandair Group. Gengu viðskiptin í gegn á genginu 7,15. NT er að fullu leyti í eigu Ómars Benediktssonar, varaformanns stjórnar Icelandair Group. Hann átti ekki hluti í félaginu fyrir viðskiptin. Bréf Icelandair hækkuðu nokkuð í Kauphöll eftir viðskiptin eða um 2,1% og standa nú í genginu 7,28.

Markaðsverðmæti Icelandair nemur nú 39,6 milljörðum króna. Eigið fé félagsins nam 53,6 milljörðum króna í lok júnímánaðar.