Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Eins og mér var kynnt þetta var sama fermetraverð á öllum íbúðum sem Félag eldri borgara í Reykjavík, FEB, byggði í Árskógum 1 til 3.

Guðrún Erlingsdóttir

ge@mbl.is

„Eins og mér var kynnt þetta var sama fermetraverð á öllum íbúðum sem Félag eldri borgara í Reykjavík, FEB, byggði í Árskógum 1 til 3. Skipti þá engu hvort um íbúðir á efstu hæð annars staðar í húsinu væri að ræða,“ segir einstaklingur í FEB sem ekki vill láta nafns síns getið en sótti um íbúð í húsunum.

Í tæpar þrjár vikur hafa blaðamenn reynt árangurslaust að ná í Gísla Jafetsson, framkvæmdastjóra FEB, og Þorberg Halldórsson, formann byggingarnefndar, til þess að fá svör um fyrirkomulag úthlutunar í Árskógum 1 til 3, m.a. til að spyrja hvort rétt sé að fermetraverð sé það sama óháð staðsetningu íbúðar, auk fleiri atriða sem út af hafa staðið.

Lífaldur galopnaði úthlutunina

Félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík sem tjáð hafa sig við Morgunblaðið eru ósáttir við framkvæmd úthlutunarinnar og þá leynd sem hvílt hefur yfir henni.

Einn félagsmaður gagnrýnir ákvæðið um að horft skuli til lífaldurs umsækjanda til þess að skapa ákveðna breidd í aldurshópi verðandi íbúa, þar sem slíkt ákvæði galopni úthlutunina og erfitt sé að henda reiður á hvort eitthvað misjafnt hafi átt sér stað við úthlutun. Félagsmaður sem blaðið ræddi við sagðist hafa skilning á því að ekki væri gott að íbúar væru allir á sama aldri. Hins vegar væri slæmt að vita ekki hversu mikið vægi það hefði við úthlutun. Einnig hefur verið bent á að hugsanlega hafi ekki allir einstaklingar setið við sama borð vegna ákvæðis um það hvenær umsækjendur settu sig á lista yfir áhugasama. Hugsanlega hafi einhverjir félagsmenn haft þar forskot.

Önnur ákvæði, svo sem um félagsaðild og lengd hennar eða fjárhagslega getu, skuldbinding um fasta búsetu og samþykkt á kvöðum lóðar og íbúðar, hafa að sögn heimildarmanna ekki verið umdeild.

Viðmælendur Morgunblaðsins segja að þegar gagnsæi sé ekki nægt fari sögur af stað og það sé aldrei gott.