Ný spurning. S-Allir
Norður | |
♠109 | |
♥ÁD752 | |
♦Á32 | |
♣G92 |
Vestur | Austur |
♠ÁD643 | ♠852 |
♥1083 | ♥KG64 |
♦1074 | ♦965 |
♣86 | ♣D107 |
Suður | |
♠KG7 | |
♥9 | |
♦KDG8 | |
♣ÁK543 |
Suður spilar 3G.
Eftir 60 ár í varnarbransanum skellir Eddie Kantar nýrri spurningu framan í lesandann. Nú er það ekki „hvað viltu gera?“ heldur „hvað hefur klikkað?“ Lesandinn er í vestur og spilar út litlum spaða gegn 3G. Austur sýnir þrílit með áttunni og sagnhafi spilar strax laufgosa úr borði – drottning, kóngur og sexa. „Hefur eitthvað farið úrskeiðis, so far?“ spyr sá gamli.
Kantar sýnir bara tvær hendur til að byrja með – og sagnir, auðvitað. Suður opnaði á Standard-laufi og vatt sér svo í 2♦ við hjartasvari. Norður sagði 2♠ (fjórða litinn) og suður 3G. Af þessum sögnum og talningu félaga í fyrsta slag má ráða að líkleg skipting sagnhafa sé 3=1=4=5.
Austur þarf að komast inn til að spila spaða, en af því vestur – ÞÚ – settir SEXUNA í laufslaginn er það ekki lengur mögulegt. Sagnhafi mun fara inn í borð á ♦Á, spila þaðan litlu laufi og dúkka sjöu makkers.