Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í gærmorgun. „Ég get staðfest að vistmaður á Litla-Hrauni fannst látinn við opn-un klefa í morgun.

Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í gærmorgun. „Ég get staðfest að vistmaður á Litla-Hrauni fannst látinn við opn-un klefa í morgun. Ekkert bendir til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan sér um rannsókn,“ sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri við mbl.is í gær.

Aðstandendum hins látna var tilkynnt andlátið. Páll bætti við að um harmleik væri að ræða og að bæði vistmenn og starfsmenn fangelsisins væru harmi slegnir.