Kristín Ingadóttir
Kristín Ingadóttir
Tvær íshokkíkonur munu spila með sænska liðinu Färjestad í vetur. Tilkynnt var í gær að Kristín Ingadóttir hefði gengið til liðs við félagið, en hún fylgir þar í fótspor Ragnhildar Kjartansdóttur, sem áður hafði samið við það.

Kristín spilaði með liði Reykjavíkur síðasta vetur en Ragnhildur varð aftur á móti Íslandsmeistari með SA. Þær voru báðar í íslenska landsliðinu í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins í Rúmeníu í vor þar sem liðið fékk bronsverðlaun. yrkill@mbl.is