Siglt af stað Bátur frá Björgunarsveit Árborgar sá um að koma kafbátnum út í Þingvallavatn. Kafbáturinn er gríðarlega þungur og þurfti fjóra menn til þess að koma honum í bátinn. Hann sigldi síðan sjálfur við botn vatnsins.
Siglt af stað Bátur frá Björgunarsveit Árborgar sá um að koma kafbátnum út í Þingvallavatn. Kafbáturinn er gríðarlega þungur og þurfti fjóra menn til þess að koma honum í bátinn. Hann sigldi síðan sjálfur við botn vatnsins. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Belgíska ferðamannsins Björn Debecker, sem talinn er hafa fallið í Þingvallavatn fyrir um 13 dögum, var leitað í gær eftir nokkurra daga hlé á leit.

Magnús Heimir Jónasson

mhj@mbl.is

Belgíska ferðamannsins Björn Debecker, sem talinn er hafa fallið í Þingvallavatn fyrir um 13 dögum, var leitað í gær eftir nokkurra daga hlé á leit. Sérstakur kafbátur í eigu tæknifyrirtækisins Teledyne Gavia var settur út við Miðfell til þess að skanna botn vatnsins með sónartæki og taka um 50 þúsund ljósmyndir af dýpstu hlutum vatnsins. Leitin að Debecker hefur staðið yfir frá 10. ágúst, þegar tilkynning barst um fljótandi hlut í vatninu. Við nánari könnun þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar reyndist hluturinn vera mannlaus bátur.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var Debecker á uppblásnum kajak sem vegur einungis þrjú kíló. Rúmlega 70 manns tóku þátt í leitinni fyrsta daginn en bakpoki og bátur Debecker er það eina sem hefur fundist. Fimm manna teymi sem samanstóð af fólki frá Björgunarsveit Árborgar, köfurum frá sérsveit ríkislögreglustjóra og tæknifræðingi frá Teledyne Gavia stýrði leitinni með kafbátnum í gær.

Leitað á dýpsta svæði vatnsins

Um er að ræða sjálfstýrðan kafbát sem fylgir fyrir fram teiknuðu korti um hvert hann á að fara og hvað hann á að gera. „Þetta leitarsvæði sem við erum að taka núna er dýpsti hlutinn á þessu skilgreinda leitarsvæði í tengslum við þetta mál. Þessir leitarkassar sem við erum að fara í eru tveir, og hvor kassi um sig tekur um fjóra til fjóra og hálfan tíma,“ sagði Arnar Egilsson, kafari hjá sérsveit ríkislögreglustjóra, í gærmorgun.

Kafbáturinn er með tveggja megapixla myndavél að framan sem tekur svarthvítar myndir. Sónartæki kafbátsins er á bakhliðinni og var stillt á að senda út í 20 metra til hvorrar hliðar. Kafbáturinn er einnig búinn framvísandi sónartæki til að koma í veg fyrir árekstur, en kafbáturinn sigldi um þrjá metra frá botni Þingvallavatns við leit sína. Að sögn Arnars hefur leitin gengið vel síðustu vikur en hann segir svæðið vera stórt og dýpið mikið. „Það er helsti takmarkandi þátturinn og úrræði okkar til leitar á þessu sviði eru takmörkuð. Því þurfum við að leita víða eftir hjálp. Þar af leiðandi hefur Teledyne, sem býr yfir þessum búnaði, komið okkur til aðstoðar,“ sagði Arnar.

Kafbáturinn er íslensk hönnun og á rætur sínar að rekja til verkefnis við Háskóla Íslands fyrir um 20 árum.

Ekki er hægt að skoða myndir frá kafbátnum í rauntíma, þar sem einungis hljóðmerki nær í gegnum vatnið í svona mikilli dýpt. Reiknað var með að kafbáturinn myndi fara í allt að 60 m dýpi í gær. „Við kíkjum á þetta eftir á; það er engin leið að hafa samskipti með svona mikinn gagnastraum í gegnum vatnið. Það er bara hljóðmerki sem drífur þar í gegn. Þannig að við getum bara haft samband við hann en við getum ekki skoðað gögnin,“ sagði Erlendur Geirdal, tæknifræðingur hjá Teledyne Gavia.

Hafði róið til Héðinsfjarðar

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, hefur verið í samstarfi við belgísku lögregluna í tengslum við málið.

„Þar hafa menn verið að vinna ákveðna þætti fyrir okkur í upplýsingaöflun og það hefur verið frábært samstarf,“ sagði Oddur. Hann sagði að vitað væri að Debecker hefði verið á bátnum á Norðurlandi áður en hann fór á Þingvallavatn. „Við höfum upplýsingar um að hann hafi róið frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð en farið þar að landi og þaðan fór hann suður,“ sagði Oddur.

Hann sagði að leit hefði gengið vel þrátt fyrir hvassviðri fyrstu dagana. „Þá eru menn í raun bara að leita við fjöruna og í því sem rekur á land. Við fundum strax búnað sem tilheyrði þessum ferðamanni, sem rak á land. Báturinn og eitthvað sem hann missti úr bátnum. Síðan hefur verið leitað með ýmsum úrræðum í vatninu. Við teljum fullvíst að hann sé í vatninu.“

Áfram fylgst með vatninu

Spurður hvaða aðgerðir færu af stað ef maðurinn fyndist á botni Þingvallavatns svaraði Oddur að það færi eftir aðstæðum.

„Það fer eftir dýpi. Það kemur ekkert í ljós strax. Við sjáum það sem kemur frá kafbátnum ekki í rauntíma. Það er heilmikil yfirferð á því efni sem þeir eru að taka upp núna, 40 til 50 þúsund ljósmyndir og svo sónargögn. Það er einhverra daga vinna að fara í gegnum það. Ef það er eitthvað að sjá tekur bara við allt annar fasi og úrræði í samræmi við það dýpi.“

Síðdegis í gær var ákveðið að gera hlé á formlegri leit. Áfram verður fylgst sérstaklega með vatninu en komi ekkert nýtt upp verða bakkar þess gengnir eftir 3-4 vikur til að kanna hvort eitthvað tengt leitinni hafi rekið að landi.