Guðný Sigríður Arnbergsdóttir, kaupmaður í Hafnarfirði, fæddist 14. júní 1936 á Borgarfirði eystra. Hún lést 9. ágúst 2019 á Landspítalanum í Fossvogi.
Foreldrar hennar voru Jóna Stefanía Ágústsdóttir, f. 24.11. 1915, d. 25.6. 1986, og Arnbergur Gíslason, f. 25.1. 1905, d. 30.4. 1997. Guðný var elst sjö systkina, hin eru: Margrét Lilja, f. 1939, Grétar, f. 1942, Gísli, f. 1946, Jóhanna, f. 1947, Friðbjörg Ósk, f. 1954, og Rúnar Ágúst, f. 1959, d. 2001.
Guðný ólst upp á Borgarfirði eystra en fór ung að aldri til Reykjavíkur og síðar Hafnarfjarðar. Hún giftist eiginmanni sínum, Ægi B.B. Bessasyni, f. 15.11. 1935, d. 17.2. 2018, hinn 26. ágúst 1962. Þau bjuggu lengst af í Hafnarfirði. Þau eignuðust fimm dætur: Stefaníu, f. 1963, Lilju, f. 1965, Írisi, f. 1968, Ragnhildi, f. 1976, og Ingveldi, f. 1978. Guðný skilur eftir sig 15 barnabörn og fimm barnabarnabörn.
Guðný rak ásamt eiginmanni sínum verslanir og heildsölu í Hafnarfirði: Norís, Radíóval, Val, Bombey, Amor, Kertaheim og Heilsubúðina.
Útför Guðnýjar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 26. ágúst 2019, klukkan 13.
Með mikla sorg í hjarta minnist ég elsku mömmu minnar.
Mamma var mikill karakter sem heillaði fólk með brosi sínu og sjarma.
Endalausar minningar hellast yfir mig allt frá því þegar ég var lítil stelpa að hlusta á sögur af álfum og huldufólki og ævintýrunum frá æskuslóðum hennar. Það hafði mikil áhrif á mig sem barn og ég fyllist enn lotningu þegar ég hugsa eða fer til Borgarfjarðar eystri. Minnisstætt er þegar við æddum af stað í fjögurra daga berjamó á æskuslóðir þínar með fullt af plastfötum og ekkert meira, þú vildi fara strax, þú varst alltaf að flýta þér.
Kvöldsins sem þú hittir æskuvinkonuna þína minnist ég með brosi á vör, hlustandi á ykkur flissa eins og smástelpur yfir prakkarastrikunum sem þið frömduð. Er þakklát fyrir það og allar hinar óteljandi minningar sem ég á.
Ég minnist þín, mamma, sem kjarnakonu, handavinnumeistara, mikils frumkvöðuls, garðyrkjumeistara, heilara og ótrúlega duglegrar konu með hjarta úr gulli.
Ég er þakklát fyrir allt sem þú kenndir mér í lífinu, mamma mín, það lifir í hjarta mínu.
Það er huggandi að hugsa til þess að núna ertu sameinuð pabba á ný og í huganum sé ég ykkur dansa saman í blómagarðinum ykkar umvafin rósum í litla húsinu ykkar í sumarlandinu.
Hvíldu í friði, elsku mamma mín.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist
endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Þín dóttir
Lilja.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Þín dóttir,
Ragnhildur Ægisdóttir.
Elsku mamma, ég kveð þig að sinni.
Þín dóttir,
Íris Ægisdóttir.
Lilja Björk
Dennisdóttir,
Muncie Indiana BNA.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
hinum líkn, er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Stefanía Ægisdóttir.
Það gefur mér huggun í sorginni að vita að nú eruð þið pabbi sameinuð á ný og gerið það sem þið voruð búin að ákveða í Sumarlandinu ykkar fagra; að rækta rósir og fallegan garð.
Ó, mamma mín, nú leiðir skilja að sinni,
og sorgartárin falla mér á kinn,
en hlýjan mild af heitri ástúð þinni,
hún mýkir harm og sefar söknuðinn.
Í mínum huga mynd þín skærast ljómar,
og minningin í sálu fegurst ómar.
Þú móðir kær þér aldrei skal ég gleyma,
þinn andi fylgi mér á lífsins strönd.
Ég vil í hjarta heilræðin þín geyma
og halda fast í Drottins styrku hönd.
Með huga klökkum kveð ég góða móður.
Ó, mamma mín, þú lífs míns stærsti sjóður.
(Árni Gunnlaugsson)
Takk fyrir lífið og samveruna, elsku mamma mín.
Þín dóttir,
Ingveldur.
Við vorum góðar vinkonur. Við töluðum saman um mikið og margt og mér fannst svo gott að tala við þig. Við gátum oft hlegið saman að því hvað við vorum líkar að mörgu leyti. Við vorum með það alveg á hreinu að það fylgdi nafninu að okkur Guðnýjum finnst svo ofboðslega leiðinlegt að elda.
Mínir bestu tímar á Íslandi á sumrin voru hjá þér, úti í garði eða sitjandi með þér inni í sólstofu að spjalla og njóta. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að vera með þér eitt sumar í viðbót núna í sumar. Þessi tími sem ég fékk með þér er ógleymanlegur.
Elsku amma mín, það gleður mig að vita af þér núna með elsku afa mínum og að þið getið verið saman að eilífu í Sumarlandinu. Elsku amma, ég þakka þér fyrir samveruna í þessu lífi og ég tel mig svo sannarlega heppna að hafa átt svo stórglæsilega konu fyrir ömmu.
Guðný Helgadóttir.