Bakkaskemma hefur fyllst af iðandi lífi á síðustu árum og tilgangur skemmunnar og ásjón breyst til muna.

Bakkaskemma hefur fyllst af iðandi lífi á síðustu árum og tilgangur skemmunnar og ásjón breyst til muna. Skemman, sem er úti á Granda, er nú heimili sjávarklasans, samfélags 50 framsækinna fyrirtækja sem líta til hafsins í sinni starfsemi, mathallar og veitingastaðarins Bergssonar RE.

Það er þó ekki bara Bakkaskemma sem hefur sprungið út heldur nánast Grandinn í heild sinni. Í húsum sem áður voru að mestu nýtt í tengslum við fiskvinnslu er nú að finna veitingastaði, ísbúð, fatahönnuði, gleraugnabúð, kökubúð og kjötbúð. Sífellt bætast við ný tækifæri á Grandanum en verið er að innrétta nýjan veitingastað þar. 10