Bakkaskemma Húsið var byggt árið 1967 og var vöruskemma á fyrstu árunum. Á allra síðustu árum hefur húsið fengið nýtt hlutverk. Endurbætur hafa verið gerðar fyrir um hálfan milljarð króna.
Bakkaskemma Húsið var byggt árið 1967 og var vöruskemma á fyrstu árunum. Á allra síðustu árum hefur húsið fengið nýtt hlutverk. Endurbætur hafa verið gerðar fyrir um hálfan milljarð króna. — Morgunblaðið/sisi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fá hús á Íslandi hafa gengið jafn rækilega í endurnýjun lífdaga og Grandagarður 16. Þar sem áður var vöruskemma er nú iðandi líf í öflugum sjávarklasa og vinsælli mathöll.

Baksvið

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Fá hús á Íslandi hafa gengið jafn rækilega í endurnýjun lífdaga og Grandagarður 16. Þar sem áður var vöruskemma er nú iðandi líf í öflugum sjávarklasa og vinsælli mathöll. Í þessu rúmlega 50 ára gamla húsi vinnur nú mikill fjöldi manns að margvíslegum verkefnum.

Grandagarður 16 var byggður af Reykjavíkurhöfn árið 1967, sem vöruskemma. Húsið fékk nafnið Bakkaskemma og er nú í eigu Faxaflóahafna sf. Á þessum tíma fóru vöruflutningar allir fram í gömlu höfninni en fram undan voru breyttir tímar. Fyrsti áfangi Sundahafnar var tekinn í notkun 1968 og smám saman fluttust allir vöruflutningar þangað.

Netagerð á efri hæðinni

Við þetta breyttist hlutverk Bakkaskemmu. Á meginhluta efri hæðar hússins, eða á alls um 2.200 fermetrum, var um árabil netagerð Hampiðjunnar, sem nú er með aðstöðu sína í Sundahöfn. Efri hæðin var síðar lánuð Hugmyndahúsi háskólanna undir starfsemi sem kölluð var Útgerðin, en þar var unnið að ýmiss konar listtengdum verkefnum. Á jarðhæðinni var Fiskmarkaður Íslands hf. með starfsemi sína og er enn. Þá hefur rafverktakafyrirtækið Raftíðni ehf. aðsetur í nyrðri hluta jarðhæðar hússins.

Íslenski sjávarklasinn var stofnaður árið 2011 og nýtir meginhluta efri hæðar Grandagarðs 16. Hann rekur Hús sjávarklasans, sem er samfélag yfir 50 fyrirtækja og frumkvöðla í hafsækinni starfsemi. Þar eru fyrirtæki í fiskeldi, fisksölu, sjávarútvegstækni, hugbúnaði, hönnun, líftækni, snyrtivörum og ýmsu öðru. Hús sjávarklasans er samfélag þessara fyrirtækja og vettvangur fyrir þau að skapa saman ný verðmæti, segir í kynningu. Þarna starfa um 100 manns.

Tímamót urðu þegar Grandi mathöll var opnuð með átta bása og 40 starfsmenn. Aðsóknin hefur verið gríðargóð og fyrsta hálfa árið komu t.d. 170 þúsund gestir. Mathöllin er í suðurhluta Grandagarðs 16 og veitingastaðurinn Bergsson RE hefur verið starfandi á efri hæðinni.

Að vonum hefur þurft að gera miklar og kostnaðarsamar breytingar á Bakkaskemmu svo mögulegt væri að hýsa nýja og breytta starfsemi. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands lagði fram fyrirspurn um kostnað við þessar endurbætur og var svar Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, birt í borgarráði. Heildarkostnaður við endurnýjunina reyndist krónur 509.190.528 án virðisaukaskatts. Mest var framkvæmt árið 2013, fyrir alls 154 milljónir.

Endurbætur og breytingar á Bakkaskemmunni fóru fram árin 2011 til 2018. Á þeim tíma var eftirspurn eftir leiguhúsnæði í Örfirisey lítil og ekki fyrirsjáanlegt að unnt væri að leigja laus rými í húsinu út í einni heild, segir Gísli í svari sínu. Ekki var gerð heildaráætlun um endurbætur en ákveðið að bjóða út 1. áfanga innréttinga og gera ráð fyrir aðstöðu smærri fyrirtækja. Í framhaldi var gerð áætlun fyrir næsta verkáfanga. Fyrir hvert útboð var gerð kostnaðaráætlun fyrir þann verkhluta á verðlagi hvers árs og verkefnið tilgreint í fjárhagsáætlun hvers árs. „Framkvæmdir voru unnar í alls fimm verksamningum í kjölfar opinna útboða og var samið við lægstbjóðanda í öllum tilvikum,“ segir Gísli.

Líf um allan Grandann

En það er ekki bara í Bakkaskemmu sem færst hefur mikið líf. Eiginlega má segja það um allan Grandann. Verbúðirnar norðan við Grandagarð voru reistar á árunum 1945-1955 og eru friðaðar. Þar má nú finna nokkur veitingahús, ísbúð, kökubúð, kjötbúð, gleraugnabúð og fatahönnuði.

Veitingahús er einnig að finna í gömlum frystihúsbyggingum sunnan götunnar svo og í Marshall-húsinu, þar sem áður var fiskimjölsverksmiðja. Að ógleymdum hinum klassíska Kaffivagni, fyrsta veitingahúsinu á svæðinu. Í húsi þar fyrir norðan, sem er kennt við Slysavarnafélag Íslands, er verið að innrétta enn eitt veitingahúsið. Þá er ótalinn fjöldi safna á svæðinu.