Önnur kýr. S-Allir
Norður | |
♠9854 | |
♥ÁG32 | |
♦Á82 | |
♣KD |
Vestur | Austur |
♠ÁKD103 | ♠762 |
♥D10974 | ♥85 |
♦D65 | ♦G973 |
♣– | ♣G876 |
Suður | |
♠G | |
♥K6 | |
♦K104 | |
♣Á1095432 |
Suður spilar 6♣.
Lítum á aðra kú úr fjólublárri hjörð Ungverjans Imres András – trompbragð og þvingun í sama spili. Suður spilar 6♣ eftir eðlilega laufopnun og Michaels-innákomu vesturs á 2♣ til að sýna hálitina. Vestur tekur slag á spaða og skiptir yfir í hjartatíu. Sagnhafi drepur á kóng heima, spilar laufi og legan sannast.
Nú þarf að undirbúa trompbragð með styttingi. Sagnhafi trompar spaða, svínar hjartagosa og trompar aftur spaða. Spilar laufi á blindan og reynir svo að sleppa í gegn með hjartaás. Ef austur hendir í slaginn verður einfalt að klára trompbragðið, en látum hann trompa. Það er betri vörn. Suður yfirtrompar og tekur öll laufin. Vestur þarf að halda í hæstu spilin í báðum hálitum og neyðist því til að fara niður á tíguldrottningu blanka. Hún mun þá falla undir ásinn og síðan er tíunni svínað!
Haldþvingun.