Eldur Slökkviliðsmenn búnir að slökkva eld í sumarbústað á Barðaströnd.
Eldur Slökkviliðsmenn búnir að slökkva eld í sumarbústað á Barðaströnd.
Eldur kom upp í sumarbústað á Barðaströnd á Vestfjörðum síðdegis í gær, að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar slökkviliðsstjóra.

Eldur kom upp í sumarbústað á Barðaströnd á Vestfjörðum síðdegis í gær, að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar slökkviliðsstjóra. Ekki tókst að bjarga bústaðnum en allt tiltækt slökkvilið tók þátt í slökkvistarfinu, alls átján manns, auk lögreglu og sjúkraliðs.

Slökkviliðmenn frá Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal tóku þátt í slökkvistarfinu. Að sögn Davíðs var bústaðurinn mikið brunninn þegar slökkviliðið kom á vettvang á sjöunda tímanum í gær og ljóst að hann er ónýtur. Enginn var í bú-staðnum þegar eldurinn kom upp.

Að sögn Davíðs er bústaðurinn á Barðaströnd, rétt innan við Kleifa-heiði í Holtsdal. Mikill gróður er allt í kring. Svo vel vildi til að rignt hafði í gær þannig að ekki urðu miklar gróðurskemmdir en mjög þurrt hefur verið á Barðaströndinni í sumar.