Gleði Kornunga fólkið skemmti sér sérstaklega vel á Tónaflóði sem var að venju á Arnarhóli. Síðar um kvöldið var flugeldum skotið á loft. Komi þeir ekki aftur þá er alla vega hægt að hugga sig við það að þeir fóru með hvelli.
Gleði Kornunga fólkið skemmti sér sérstaklega vel á Tónaflóði sem var að venju á Arnarhóli. Síðar um kvöldið var flugeldum skotið á loft. Komi þeir ekki aftur þá er alla vega hægt að hugga sig við það að þeir fóru með hvelli. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Á annað hundrað þúsund manns lögðu leið sína í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt sem haldin var hátíðleg sl. laugardag. Fyrstir til að mæta voru hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni, en 14.

Ragnhildur Þrastardóttir

ragnhildur@mbl.is

Á annað hundrað þúsund manns lögðu leið sína í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt sem haldin var hátíðleg sl. laugardag. Fyrstir til að mæta voru hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni, en 14.667 manns voru þar skráðir til leiks á ýmsum vegalengdum.

Mikil veðurblíða var í miðborginni eftir hádegi og lék sólin við gesti Menningarnætur. Yfir 300 viðburðir stóðu gestum til boða.

Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg, var hæstánægður með hátíðina þegar blaðamaður náði tali af honum í gær.

„Við erum mjög ánægð með hvernig til tókst. Veðrið náttúrlega hjálpaði til, það var ótrúlega flottur bragur á deginum og mjög góð mæting. Allt fór frekar vel fram og mér fannst góð dreifing á öllu. Ég fór víða og mér fannst vera nokkuð jafn mannfjöldi yfir allt svæðið.“

Framtíð flugeldanna óviss

Menningarnótt nær að margra mati hámarki með flugeldasýningu en rætt hefur verið um að hætta að skjóta upp flugeldum á Menningarnótt vegna mengunar sem þeir valda. Að sögn Guðmundar er enn óljóst hvort flugeldasýningin verður á Menningarnótt að ári. Hann segir að ef svo beri undir sé nauðsynlegt að eitthvað komi í staðinn.

„Það verður að vera, myndi ég halda, þar sem þetta er einn af hápunktum Menningarnætur. Það er alltaf verið að velta einhverju upp í kringum hátíðina og þetta er eitt af því. Þetta er bara á grunnumræðustigi svo þetta er ekki komið í neinn farveg,“ segir hann. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir flugeldasýningu „mjög sameinandi“ og að engin ákvörðun hafi verið tekin um að hætta henni á næstunni.

Menningarnótt í fyrra var sögð sú stærsta frá upphafi. Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó bs., telur að Menningarnótt hafi verið enn umfangsmeiri í ár.

„Okkar tilfinning er að þetta hafi verið sérstaklega stór dagur, jafnvel stærri en í fyrra,“ segir hann.

Sérstök skutluþjónusta var á vegum Strætó á Menningarnótt en eins og þekkt er er erfitt að komast í miðbæinn á einkabílnum á Menningarnótt vegna götulokana.

„Heilt yfir gekk aksturinn vel en það segir sig sjálft að það verða hnökrar hér og þar þar sem þetta er náttúrlega gríðarlegur fólksfjöldi og gríðarlega umfangsmikið verkefni á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Guðmundur Heiðar.

Leiðindi undantekning

Einhverjir farþegar voru til vandræða en það var þó í undantekningartilvikum, að sögn Guðmundar Heiðars. „Þegar leið á seinni hlutann var fólk auðvitað komið í glas og einhverjir hreyttu einhverjum leiðindum í vagnstjóra en flestir voru ótrúlega fínir farþegar.“

Aðspurður segir Guðmundur að það sé sífellt að aukast að fólk nýti sér þjónustu Strætó á Menningarnótt en hún er ókeypis.

„Fleiri virðast vera að átta sig á því að þessi þjónusta sé í boði.“

Í vikunni verður farið yfir daginn með sveitarfélögum og rýnt í hvað mætti betur fara. Guðmundur var ekki með nákvæmar upplýsingar um það hversu margir nýttu sér þjónustu Strætó á Menningarnótt þegar blaðamaður ræddi við hann í gær.

Sviðsett hnífstunga við Sæbrautina

• 141 mál á borð lögreglu • Mikið um unglingadrykkju • Íslendingar leggja sjaldnar ólöglega „Við höfum í raun séð miklu verri helgar,“ segir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um eril hjá lögreglunni á Menningarnótt. Alls kom 141 mál inn á borð lögreglunnar á löggæslusvæði eitt frá klukkan sjö á laugardagskvöld og fram til fimm á sunnudagsmorgun. Átta voru vistaðir í fangageymslum lögreglu.

„Á föstudagskvöldið voru 17 inni í fangageymslu svo það var mun meira að gera þá þótt það væru miklu færri í bænum,“ segir Jóhann við Morgunblaðið.

Fjögur fíkniefnamál voru skráð og fimm líkamsárásir eru til rannsóknar, allar minniháttar. Eitt umferðarslys varð ásamt því sem tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur. Eins konar sviðsett hnífstunga kom upp þegar gestir Menningarnætur fylgdust með flugeldasýningunni af Sæbraut.

„Þetta var sennilega gamall sjálfsáverki og svo vildi viðkomandi fá athygli. Það er ekki verið að leita að einhverjum óðum manni sem er stingandi fólk og hlaupandi út í nóttina. Þarna var einfaldlega um andleg veikindi að ræða,“ segir Jóhann. Lögregla ræddi við manninn vegna málsins.

Unglingadrykkja fylgifiskur hátíðar

Spurður hvort margir hafi lagt ólöglega segir Jóhann: „Nei, ég held að þjóðin sé nú bara orðin nokkuð vel uppalin í því. Menn labba og hjóla og nýta sér strætó svo það var ekki vandamál.“

Hann segir að þeim sem leggi ólöglega á Menningarnótt sé að fækka. „Ég held að fólk sé að kveikja á því hvað er lagt mikið í sölurnar hjá Strætó og þeir sem geta gengið eða hjólað gera það. Ég held að það megi bara hrósa þjóðinni fyrir það.“

Fyrir Menningarnótt gaf lögreglan út að hart yrði tekið á unglingadrykkju. Jóhann segir unglingadrykkju vera fylgifisk Menningarnætur en lögreglumenn helltu niður áfengi hjá ungmennum og börnum sem ekki höfðu aldur til að neyta þess og fóru með ungmenni sem voru áberandi ölvuð í sérstakt athvarf. ragnhildur@mbl.is