Kristín Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 7. maí 1926. Hún lést 25. júlí 2019.

Kristín var jarðsungin 7. ágúst 2019.

Elsku amma.

Þú varst mér svo miklu meira en amma í þeim skilningi sem settur er í það mæta orð. Þú varst mjög góð vinkona mín. Þú varst mikil smekkkona og hjálpaðir mér með fataval þegar mikið stóð til. Þú varst með einstaklega góðan húmor og komst mér alltaf til að hlæja.

Ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Óteljandi kaffibolla, Útsvarskvöldin okkar, búðaferðirnar, ísbíltúrana í Svandísi og allar þær góðu stundir sem ég á í minningabankanum.

Þegar ég heyrði í þér í síma eða hringdi dyrabjöllunni kynnti ég mig alltaf sem uppáhalds barnabarnið þitt og því finnst mér við hæfi að enda þetta á þeim orðum. Hvíldu í friði, elsku amma mín.

Þitt uppáhalds barnabarn,

Marthe Sørdal.