Sölumaður Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar að lengd. Kristján er með 250 potta á lager.
Sölumaður Ameríski húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, eða 18 metrar að lengd. Kristján er með 250 potta á lager. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.

Baksvið

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Kristján Berg Ásgeirsson, eða Fiskikóngurinn eins og hann er gjarnan kallaður, í höfuðið á fiskbúð sem hann rekur á Sogavegi í Reykjavík, hefur ferðast vítt og breitt um landið á húsbíl í sumar og selt heita potta með góðum árangri. Segist Kristján í samtali við Morgunblaðið hafa selt 600 potta á síðasta ári og útlit sé fyrir svipaða og jafnvel meiri sölu í ár.

„Ég er búinn að selja heita potta núna í 15 ár samhliða fiskinum. Ég fer gjarnan í „pottagírinn“ um miðjan apríl og er á fullu fram í miðjan október. Elsti sonur minn rekur fyrir mig Fiskikónginn á sumrin. Ég mæti þangað á morgnana og vinn til 10 en sný mér þá að heitu pottunum,“ segir Kristján.

Pottana hefur Kristján selt í gegnum heimasíðuna heitirpottar.is og í gegnum verslun sína á Höfðabakka 1 við Gullinbrú, auk þess að selja þá í húsbílnum, eins og fyrr sagði. „Ég og eiginkonan vorum búin að eiga þennan húsbíl í sex ár, risastóran amerískan trukk. Þá byggðum við okkur sumarbústað og hún vildi selja bílinn en ég var tregur til. Niðurstaðan var að ég lét fyrirtækið kaupa bílinn og fékk svo þá hugmynd að leigja mér kerru og fara á bílnum í söluferð til Akureyrar. Svo fór þetta að vinda upp á sig og ég fór að fara í fleiri söluferðir. Nú er þetta eiginlega orðið fullt starf hjá mér.“

Eltir sólina

Þegar Morgunblaðið hafði samband við Kristján var hann staddur á Ólafsvík. Hann segist sjaldnast vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Hann elti sólina, enda er að hans sögn best að selja heita potta í góðu veðri. „Ég er alltaf með sex óselda potta í bílnum þegar ég fer af stað en tek líka pantanir og sel af lagernum. Í gær var ég með fulla kerru af pottum, eða sex potta, en nú eru tveir farnir. Ég er yfirleitt tvo daga að klára pottana úr kerrunni.“

Húsbíllinn og kerran eru engin smásmíði, 18 metrar að lengd. „Til samanburðar er gámaflutningabíll með 40 feta gám aðeins 12 metra langur. Það versta við þetta er að ef ég kem heim á bóndabæi eða botnlanga í hverfum er erfitt að snúa við. Ég er orðinn algjör meistari í að bakka bílnum.“

Spurður hvernig hann tekur pottana af kerrunni segir Kristján að það sé lítið mál. Hægt sé að nota hafnarkrana eða ýmis landbúnaðartæki á þeim stöðum sem hann kemur á. „Mér finnst auðveldara að afhenda potta úti á landi en í Reykjavík. Á Akureyri eiga til dæmis allir sína eigin kerru.“

Hefur engu að tapa

Hver er skýringin á þessari miklu velgengni að mati Kristjáns? „Ég held ég sé bara eitthvað klikkaður. Maður fær einhverja klikkaða hugmynd og svo framkvæmir maður hana. Maður hefur engu að tapa.“

Kristján segist ekki vita hver hlutdeild hans á markaðnum er í pottasölunni, en segir að salan sé á heimsmælikvarða. „Ég heyrði það að miðað við söluna í okkar einu verslun værum við fjórða söluhæsta pottabúð í heiminum, sé horft til sölu í stökum verslunum. Menn sem ég hef hitt frá Bandaríkjunum og Kanada sem eru búnir að vera í tugi ára í þessum bransa hafa ekki heyrt svona tölur áður.“

Kristján segir að vinnudagurinn sé oft langur. „Síðasti viðskiptavinurinn fór út úr bílnum klukkan hálftvö í nótt. Þetta er rosalega skemmtilegt og gefandi starf og það skemmtilegasta sem ég hef unnið á ævinni. Ég hef selt fisk í 30 ár á sama staðnum en hér ertu að þvælast um landið og hitta fólk.“

Pottarnir sem Kristján selur eru af ýmsum gerðum – rafmagnspottar, hitaveitupottar og jafnvel sundlaugar. Þá selur hann ýmsan hliðarbúnað eins og lok, tröppur og hreinsiefni. Pottana kaupir hann frá Kanada, Bandaríkjunum og Kína.

„Ég á yfirleitt 250 potta á lager og því er úr nógu að velja. Ég held að engin pottaverslun í heiminum hafi svona stóran lager.“

Kristján er þekkt nafn í íslensku samfélagi. Bæði hefur hann auglýst þjónustu sína af kappi en einnig verið með matreiðsluþætti í sjónvarpi m.a. Hjálpar það ekki til við pottasöluna? „Ég verð alltaf smá hrærður ef fólk þekkir mig en mér finnst það bara skrýtið. Ég hef bara unnið við að selja fisk og það er ekkert merkilegt starf í sjálfu sér. En þetta hefur hjálpað mér. Aðalmálið er að vera maður sjálfur, vera heiðarlegur og koma vel fram,“ segir Kristján að lokum.

Heitir pottar
» Kristján selur heitavatnspotta, rafmagnspotta, sundlaugar og ýmsan búnað sem tengist pottunum.
» Hefur verið fisksali í 30 ár.
» Pottarnir koma frá Bandaríkjunum, Kanada og Kína.