Guðmundur Ármann
Guðmundur Ármann
Myndlistarmaðurinn Guðmundur Ármann opnaði sýningu á nýjum vatnslitamyndum í sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, um helgina. Sýningin heitir Litað vatn og er myndefnið sótt í landslag á Tröllaskaga.
Myndlistarmaðurinn Guðmundur Ármann opnaði sýningu á nýjum vatnslitamyndum í sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, um helgina. Sýningin heitir Litað vatn og er myndefnið sótt í landslag á Tröllaskaga. Allar eru myndirnar málaðar úti undi berum himni. Guðmundur á að baki langan feril sem myndlistarmaður og -kennari.