Elvar Örn Jónsson
Elvar Örn Jónsson
Elvar Örn Jónsson fór mikinn fyrir lið sitt Skjern þegar liðið fékk Lemvig í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með 34:27-sigri Skjern en Elvar Örn skoraði sjö mörk og var markahæstur.

Elvar Örn Jónsson fór mikinn fyrir lið sitt Skjern þegar liðið fékk Lemvig í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leiknum lauk með 34:27-sigri Skjern en Elvar Örn skoraði sjö mörk og var markahæstur. Þá gaf Selfyssingurinn tvær stoðsendingar að auki, en Skjern leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 18:14. Björgvin Páll Gústafsson varði fimm skot í marki Skjern, en Patrekur Jóhannesson þjálfarar liðið, sem er með 2 stig í áttunda sæti deildarinnar eftir fyrstu tvo leiki sína.

Þráinn Orri Jónsson og liðsfélagar hans í Bjerringbro-Silkeborg unnu stórsigur gegn SönderjyskE, 35:21. Þráinn Orri komst ekki á blað en Arnar Birkir Hálfdánarson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað hjá tapliði SönderjyskE.

Þá unnu Rut Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Esbjerg 23:19-útisigur gegn Holstebro en Rut skoraði ekki í leiknum. bjarnih@mbl.is