Vel yfir 80% pantaðra Mercedes-Benz-bíla sem seldir verða hjá bílaumboðinu Öskju á næsta ári verða annaðhvort rafbílar eða tengiltvinnbílar að sögn Jóns Trausta Ólafssonar, forstjóra fyrirtækisins. Sú tala nam 24% í ár en 32% árið 2018. Ein ástæðan fyrir þessari breytingu er CAFE-stefna (e. Clean Air For Europe) Evrópusambandsins sem gerir ríkar kröfur til bílaframleiðenda um að minnka kolefnislosun bílaflotans í álfunni. Markmiðið árið 2021 er að meðaltalskolefnisútblástur nýskráðra bíla verði 95 grömm.
„Bílaframleiðendur eru almennt að auka mjög hjá sér framboðið í tengiltvinnbílum og rafmagnsbílum. Framboðið er því að aukast mjög hratt. Sérstaklega í haust,“ segir Jón Trausti. Að hans sögn hafa fyrstu tvær sendingarnar af nýjum Mercedes-Benz ECQ-rafmagnsbílum selst upp auk þess sem flest módel frá fyrirtækinu verði einnig fáanleg í tengiltvinnútgáfu.
„En það er greinilega aukin eftirspurn eftir tengiltvinnbílum. Ný kynslóð þeirra býður upp á drægni allt að 100 km á rafmagninu,“ segir Jón Trausti.
Samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins varðandi nýskráða bíla í ágúst kom í ljós að nýskráningar á rafbílum hefðu aldrei verið fleiri en þá og nam hlutfallið 14,2% miðað við 7,3% fyrstu sjö mánuðina á undan. Enn fremur var hlutfall nýskráðra raf-, tengiltvinn- og „hybrid“-bíla í ágúst rúmlega 40%.