Ekki er von á góðu „þegar fólk rífur skilorð“. Þá er rýfur skárra; þótt maður endi bak við lás og slá hefur maður þó stafsett rétt. Skilorð er afplánun refsidóms og það er ekki hægt að „rífa“.
Ekki er von á góðu „þegar fólk rífur skilorð“. Þá er rýfur skárra; þótt maður endi bak við lás og slá hefur maður þó stafsett rétt. Skilorð er afplánun refsidóms og það er ekki hægt að „rífa“. Að rjúfa skilorð er að brjóta af sér meðan á afplánuninni stendur. Ég rýf , rauf og hef rofið skilorð.