50 ára Sveinn er Akureyringur en býr á Syðra-Felli í Eyjafjarðarsveit. Hann er kjötiðnaðarmaður að mennt frá VMA og hefur unnið hjá Kjarnafæði frá 17 ára aldri. Hann er líka hobbíbóndi, með hross og kindur. Maki : Sandra Einarsdóttir, f.
50 ára
Sveinn er Akureyringur en býr á Syðra-Felli í Eyjafjarðarsveit. Hann er kjötiðnaðarmaður að mennt frá VMA og hefur unnið hjá Kjarnafæði frá 17 ára aldri. Hann er líka hobbíbóndi, með hross og kindur.
Maki : Sandra Einarsdóttir, f. 1984, vinnur á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
Börn : Heiðmar Kári, f. 2010, og Ingimar Atli, f. 2013.
Foreldrar : Kjartan Friðriksson, f. 1952, vörubílstjóri hjá Norðurorku, og Hjördís Björk Bjarkadóttir, f. 1956, leikskólakennari á Síðuseli. Þau eru búsett á Akureyri.