Kosning um framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2020 er hafin og stendur til miðnættis 24. september. Að venju eru það meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) sem velja íslensku myndina.
Kosning um framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2020 er hafin og stendur til miðnættis 24. september. Að venju eru það meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) sem velja íslensku myndina. Að þessi sinni stendur valið á milli fjögurra kvikmynda. Þær eru
Héraðið
í leikstjórn Gríms Hákonarsonar,
Hvítur, hvítur dagur
í leikstjórn Hlyns Pálmasonar,
Tryggð
í leikstjórn Ásthildar Kjartansdóttur og
Undir halastjörnu
í leikstjórn Ara Alexanders Ergis Magnússonar. Kosningin er rafræn. Nánari upplýsingar eru á vefnum eddan.is.