Sundhöllin Nýr kvennaklefi hefur verið í notkun frá árslokum 2017.
Sundhöllin Nýr kvennaklefi hefur verið í notkun frá árslokum 2017. — Morgunblaðið/Hari
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosa@mbl.is

Framkvæmdir við gamla kvennaklefann í Sundhöll Reykjavíkur eru í undirbúningi að sögn Agnars Guðlaugssonar, deildarstjóra byggingardeildar Reykjavíkurborgar, en konur hafa þurft að nota nýjan og tímabundinn kvennaklefa frá því nýbygging Sundhallarinnar var opnuð 3. desember 2017.

Agnar segir að verið sé að undirbúa pöntun nýrra flísa í kvennaklefann og að hönnun hans sé langt komin. Býst hann við að framkvæmdir hefjist að fullu á næsta ári.

Karlaklefinn hefur þegar verið lagfærður og er í notkun en framkvæmdum við hann lauk í vor. Agnar segir að leki í gólfi karlaklefans, sem er staðsettur beint fyrir ofan gamla kvennaklefann, sé ástæðan fyrir því að karlaklefinn var kláraður fyrr. Segir hann að nauðsynlegt hafi verið að lagfæra gólfið í karlaklefanum áður en farið var í að lagfæra kvennaklefann.

Þurfa að ganga utandyra

Nokkurrar óánægju hefur gætt meðal kvenna sem hafa þurft að nota nýjan, tímabundinn kvennaklefa í nýbyggingu Sundhallarinnar sunnan við útilaugina á meðan gamli klefinn hefur verið ónothæfur. Í grein eftir Eddu Ólafsdóttur sem birtist í Morgunblaðinu í gær, segir hún nýju kvennaklefana hvorki sambærilega við gömlu kvennaklefana né standist þær kröfur sem gera megi til búnings- og baðklefa á nýjum sundstað. Lýsir Edda þar yfir óánægju sinni yfir að þurfa að ganga nokkurn spöl utandyra, þvert yfir útilaugasvæði Sundhallarinnar til að komast í gömlu innilaugina.

Ekki er boðið upp á einkaklefa í nýju kvennaklefunum en slíkir einkaklefar voru eitt af sérkennum gamla kvennaklefans. Sigurður Víðisson, forstöðumaður Sundhallarinnar, staðfestir við Morgunblaðið að margar konur sakni þeirra. Hann segist þó vita til þess að skiptar skoðanir séu á því hvernig fólki líki breytingin og að mörgum þyki nýi kvennaklefinn jafnvel betri en sá gamli. Þó séu margir sem vilji fá „gömlu Sundhöllina sína“ aftur og eru ósáttir við aðstöðuna og þá segist Sigurður skilja vel.