50 ára Heiðdís er frá Götu í Holtum í Rangárvallasýslu en býr í Reykjavík. Hún er hársnyrtimeistari og leiðsögumaður að mennt og er einnig með BA-gráðu í ensku frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í menningarmiðlun sömuleiðis frá Háskóla Íslands.
50 ára Heiðdís er frá Götu í Holtum í Rangárvallasýslu en býr í Reykjavík. Hún er hársnyrtimeistari og leiðsögumaður að mennt og er einnig með BA-gráðu í ensku frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í menningarmiðlun sömuleiðis frá Háskóla Íslands. Hún er sölustjóri FlyOver Iceland og enn fremur stundakennari í Leiðsöguskóla Íslands.

Börn : Einar Jarl Björgvinsson, f. 1998, og Ýmir Karl Björgvinsson, f. 2001.

Foreldrar : Einar Brynjólfsson, f. 1937, og Sigrún Ingólfsdóttir, f. 1938, bændur í Götu.