Atkvæðamikil Hin 19 ára gamla Berta Rut Harðardóttir fór mikinn í liði Hauka á síðustu leiktíð og var markahæst með 107 mörk í 21 leik.
Atkvæðamikil Hin 19 ára gamla Berta Rut Harðardóttir fór mikinn í liði Hauka á síðustu leiktíð og var markahæst með 107 mörk í 21 leik. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Haukar Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Karen Helga Díönudóttir, leikmaður Hauka í handknattleik, vonast til þess að gott undirbúningstímabil liðsins muni skila sér inn í tímabilið.

Haukar

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Karen Helga Díönudóttir, leikmaður Hauka í handknattleik, vonast til þess að gott undirbúningstímabil liðsins muni skila sér inn í tímabilið. Haukar hafa æft afar vel í sumar, þar með talin Karen Helga, en liðið endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn Val. Haukum er spáð fimmta sæti af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar.

„Við erum gríðlega spenntar fyrir komandi tímabili og þetta leggst mjög vel í okkur. Árni Stefán þjálfari hefur komið mjög vel inn í þetta og sömu sögu er að segja um þær Hörpu og Díönu aðstoðarþjálfara. Við höfum unnið mjög vel saman í allt sumar og lagt gríðarlega mikið á okkur á þessu undirbúningstímabili. Ég hef trú á því að það muni skila okkur góðum árangri þegar líða fer á tímabilið. Við fórum ekkert sérstaklega vel af stað gegn Stjörnunni en að sama skapi snýst þetta ekki um að toppa í september. Við erum á réttri leið og munum halda áfram að vinna í okkar málum. Það má alveg spá okkur fimmta sæti deildarinnar en við ætlum okkur ekki að vera þar og markmiðið er að fara hærra en það.“

Leikstíll liðsins breyst

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Hauka í sumar og er markahæsti leikmaður liðsins frá síðustu leiktíð, Maria Ines, horfin á braut.

„Það er mikill missir að þeim leikmönnum sem eru farnir frá okkur en brotthvarf þeirra hefur gert það að verkum að leikstíll liðsins hefur breyst. Við erum bæði fljótari og agaðri í sóknarleiknum en á síðustu leiktíð. Þeir leikmenn sem við höfum fengið inn líta mjög vel út og við erum með mjög spennandi leikmannahóp að mínu mati. Við erum ekki alveg fullmannaðar þessa stundina þar sem það eru tvær að stíga upp úr meiðslum og við eigum eftir að fá leikmann til okkar frá Svíþjóð. Það verður hins vegar gaman að sjá hvað við getum gert þegar við verðum komnar með fullmannað lið.“

Haukar urðu síðast Íslandsmeistarar árið 2005 og því komin nítján ár síðan liðið vann síðast þann stóra.

„Við höfum aðeins verið í sama farinu, undanfarin ár, og ég tel að nú sé tímabært fyrir okkur að taka næsta skref. Umgjörðin er alltaf geggjuð í Hafnarfirðinum og það er mikil fjölskyldustemning á Ásvöllum. Allir sem standa í kringum félagið hafa staðið sig frábærlega undanfarin ár og krafan er alltaf sú sama og það er að ná einhverjum alvöru árangri. Það er ekkert nema gott um það að segja því þannig við viljum við hafa þetta. Við ætlum okkur stóra hluti á komandi tímabili og við erum á mjög góðum stað í dag.“

Markmið Hafnfirðinga fyrir tímabilið eru skýr og liðið ætlar sér að berjast í efri hluta deildarinnar.

„Ég á von á því að þetta verði ágætis pakki og að deildin verði mjög jöfn. Fram og Valur standa kannski öðrum liðum framar eins og staðan er í dag og hin liðin þurfa að gefa aðeins í til þess að ná þeim. Heilt á litið á ég von á því að þetta verði hörð barátta og þá sérstaklega um sæti í úrslitakeppninni. Tapið gegn Val í undanúrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð var mjög sárt. Við settum í raun bara í fimmta gír eftir þann leik og vonandi fáum við annað tækifæri gegn þeim á þessari leiktíð. Markmið númer eitt tvö og þrjú er að fara í úrslitakeppnina og við tökum svo stöðuna aftur eftir það, þegar það markmið hefur náðst,“ sagði Karen Helga.

Guðríður Guðjónsdóttir um Hauka

• Haukar eru reynslunni ríkari eftir síðasta vetur.

• Stelpur sem hafa spilað lengi saman og þekkja hver aðra mjög vel.

• Geta strítt öllum liðum á góðum degi, sérstaklega ef markmennirnir ná sér á strik.

• Áhugavert: Hvort Sara Odden nær að fylla skarð Mariu, bæði sóknar- og varnarlega.

Lið Hauka 2019-20

Markverðir:

Ástríður Glódís G. Huldudóttir

Saga Sif Gísladóttir

Hornamenn:

Birta Lind Jóhannssdóttir

Helena Ósk Kristjánsdóttir

Margrét Björg Castillo

Ragnheiður Ragnarsdóttir

Línumenn:

Alexandra Líf Arnarsdóttir

Ragnheiður Sveinsdóttir

Rakel Sigurðardóttir

Útispilarar:

Berglind Benediktsdóttir

Berta Rut Harðardóttir

Guðrún Erla Bjarnadóttir

Hekla Rún Ámundadóttir

Karen Helga Díönudóttir

Rósa Kristín Kemp

Sara Odden

Þórhildur Braga Þórðardóttir

Þjálfari: Árni Stefán Guðjónsson

Aðstoðarþjálfarar: Díana Guðjónsdóttir og Harpa Melsteð.

Árangur 2018-19: 4. sæti og undanúrslit.

Íslandsmeistarar: 1945, 1946, 1996, 1997, 2001, 2002, 2005.

Bikarmeistarar: 1997, 2003, 2006, 2007

*Haukar töpuðu fyrir Stjörnunni á heimavelli, 25:22, í 1. umferð deildarinnar og mæta HK á útivelli á laugardag klukkan 16.

Breytingar á liði Hauka

Komnar

Berglind Benediktsdóttir frá Fram (lán)

Helena Ósk Kristjánsdóttir frá HK

Ragnheiður Ragnarsdóttir frá HK

Sara Odden frá Tyresö (Svíþjóð)

Farnar

Maria Ines Da Silva Pereira í þýskt félag

Ramune Pekarskyte hætt

Vilborg Pétursdóttir í nám