Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur keypt BusTravel IT, sem þróar umsjónarlausn fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Í tilkynningu frá Origo segir að markmiðið með kaupunum sé að efla enn frekar vöruframboð Origo fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem leggja áherslu á dagsferðir og afþreyingu og styrkja lausnir sem hafa verið þróaðar fyrir sama markað.
„Lausnin tengir saman ýmis kerfi og þjónustu sem flest ferðaþjónustufyrirtæki nota í daglegum rekstri, svo sem bókunarkerfi, mannauðskerfi, flotastýringarkerfi og samskiptaþjónustu,“ segir jafnframt í fréttatilkynningu Origo.